Neyðarsímtöl
Mikilvægt: Þetta tæki notar útvarpsmerki, þráðlaus staðarnet, kapalkerfi og notendaforritaðar aðgerðir. Ef
tækið styður símtöl á internetinu (netsímtöl) skaltu bæði kveikja á farsímanum og á netsímtölum. Tækið reynir bæði að
koma á neyðarsímtölum í farsímakerfinu og um þjónustuveitu netsímtala ef bæði eru virk. Ekki er hægt að tryggja
tengingu við allar aðstæður. Því skyldi aldrei treysta eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg fjarskipti,
t.d. í bráðatilvikum.
Neyðarsímtal:
1
Ef slökkt er á tækinu skaltu kveikja á því. Athugaðu hvort nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi. Þú gætir einnig
þurft að gera eftirfarandi atriði, allt eftir tækinu þínu:
•
Settu SIM-kort í tækið þitt ef það notar slíkt kort.
•
Eyddu öllum takmörkunum sem þú hefur gert virkar í tækinu þínu.
•
Breyttu sniðinu þínu úr sniði án tengingar í virkt snið.
•
Ef skjárinn og takkarnir eru læstir skaltu renna til lásnum á hlið tækisins til að opna þá.
2
Ýttu eins oft á endatakkann og þarf til að hreinsa skjáinn og gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.
3
Til að opna númeraval velurðu
Sími
eða
.
4
Sláðu inn opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði. Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.
5
Ýttu á hringitakkann.
Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa tækið þitt kann
að vera eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.