
Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki
Þetta tæki er ætlað til notkunar með BL-4U endurhlaðanlegri rafhlöðu. Hugsanlega verður hægt að fá aðrar gerðir
rafhlaðna frá Nokia fyrir þetta tæki. Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia.
Tækið er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið með eftirfarandi hleðslutækjum: AC-8 . Númer hleðslutækisins getur verið
mismunandi eftir klónni sem er notuð. Gerð klóarinnar er auðkennd með einu af eftirfarandi: E, X, AR, U, A, C, K eða B.
Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér. Þegar tal- og biðtími
er orðinn mun styttri en eðlilegt er þarf að skipta um rafhlöðu.