Aukabúnaður
Viðvörun:
Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki og aukabúnað sem Nokia hefur samþykkt til nota með þessari tilteknu tegund.
Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun getur fylgt hætta. Sérstaklega getur
notkun ósamþykktra rafhlaða eða hleðslutækja valdið eldhættu, sprengingu, leka eða haft aðra áhættu í för með sér.
Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlegan aukabúnað sem samþykktir eru til notkunar. Þegar aukabúnaður er
tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.