Nokia 5530 XpressMusic - Flýtiritun

background image

Flýtiritun

Með flýtiritun er hægt að slá inn hvaða orð sem er með því að ýta á einn takka einu

sinni. Í flýtiritun er notuð innbyggð orðabók sem hægt er að bæta nýjum orðum inn

í. Flýtiritun er ekki í boði fyrir öll tungumál.
1 Flýtiritun er gerð virk í öllum ritlum tækisins með því að velja

>

Kveikja

á flýtiritun

. Einnig er hægt að velja >

Kveikja á flýtiritun

.

2 Til að skrifa orð notarðu takkana 2-9. Veldu hvern takka aðeins einu sinni til að

slá inn einn staf. Veldu t.d. 6 fyrir N, 6 fyrir o, 5 fyrir k, 4 fyrir i og 2 fyrir a til að

skrifa „Nokia“, þegar enska orðabókin er valin.

Orðið sem stungið er upp á breytist eftir hvern staf sem er valinn.

64 Textaritun

© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

background image

3 Þegar þú klárar að skrifa orðið og það er rétt skaltu færa bendilinn til hægri til

að staðfesta það eða velja 0 til að setja inn bil.

Ef orðið er ekki rétt skaltu velja * endurtekið til að skoða orðin sem orðabókin

stingur upp á.

Ef ? birtist aftan við orðið er það ekki í orðabókinni. Orði er bætt inn í orðabókina

með því að velja undirstrikaða orðið, slá síðan inn orðið á venjulegan hátt og

velja

Í lagi

. Þá er orðinu bætt inn í orðabókina. Þegar orðabókin er orðin full er

elsta orðinu sem var sett inn í hana skipt út fyrir nýjasta orðið.

4 Byrjaðu að skrifa næsta orð.