
Takkaborð á skjá
Þú getur notað takkaborðið á skjánum í landslagsstöðu.
Ef kveikt er á sjálfvirkum skjásnúningi og skynjurum er sjálfkrafa skipt á milli
innsláttarstillinganna QWERTY á öllum skjánum (sýndarlyklaborð) og Bók- og
tölustafatakkab. (sýndarlyklaborð) þegar tækinu er snúið.
Ef innsláttarstillingin breytist ekki sjálfkrafa velurðu
>
QWERTY á öllum
skjánum
til að nota sýndarlyklaborðið.
Þegar takkaborðið er notað í landslagsstöðu og á öllum skjánum geturðu valið
takkana með fingrunum.
1 Loka - Loka skjánum með takkaborðinu.
60 Textaritun
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

2 Innsláttarvalmynd - Opna valmynd með valkostum fyrir snertiinnslátt og
skipanir eins og
Tungumál texta
.
3 Takkaborð á skjá
4 Shift og hástafalás - Til að slá inn hástaf þegar skrifað er með lágstöfum, eða
öfugt, skaltu velja takkann áður en stafurinn er sleginn inn. Til að stilla á
hástafalás skaltu velja takkann tvisvar. Strik undir takkanum sýnir að hástafalás
sé virkur.
5 Bókstafir - Slá inn bókstafi.
6 Tölur og tákn - Slá inn tölur og algenga sérstafi.
7 Kommur yfir stöfum - Velja kommur yfir stöfum.
8 Bilstika - Til að setja inn bil.
9 Örvar - Færa bendilinn afturábak eða áfram.
10 Bakktakki - Eyða staf sem sleginn hefur verið inn.
11 Færslutakki - Til að færa bendilinn yfir í næstu línu eða innsláttarreit.
Viðbótaraðgerðir fara eftir því hvað verið er að gera (t.d. í veffangsreit vafrans
virkar hann sem "Go"-hnappur).
12 Innsláttaraðferð - Velja innsláttaraðferð. Þegar smellt er á hlut lokast
innsláttarskjárinn og sá sem var valinn opnast.