6. Textaritun
Hægt er að slá inn stafi, tölur og sértákn með ýmsu móti. Takkaborð á skjánum gerir
kleift að slá inn stafi með því að banka á þá með fingrunum eða skjápennanum.
Rithandarkennsl gera kleift að skrifa stafi beint á skjáinn með skjápennanum.
Hugsanlegt er að þessi eiginleiki sé ekki tiltækur fyrir öll tungumál.
Hægt er að smella á einhvern innsláttarreit til að slá inn bókstafi, tölustafi og
sértákn.
Tækið getur lokið við að slá inn orð með innbyggðu orðabókinni sem fylgir
tungumálinu sem valið er. Tækið lærir líka ný orð sem slegin eru inn.
Textaritun 59
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.