Nokia 5530 XpressMusic - Um þráðlaust staðarnet

background image

Um þráðlaust staðarnet

Til að geta notað þráðlaust staðarnet verður slíkt net að vera til staðar og tækið að

vera tengt þráðlausu staðarneti. Sum þráðlaus staðarnet eru varin og það þarf að

fá aðgangsorð hjá þjónustuveitunni til að geta tengst þeim.

Til athugunar: Notkun þráðlauss staðarnets kann að vera takmörkuð í

einhverjum löndum. Í Frakklandi er aðeins heimilt að nota þráðlaust staðarnet

innandyra. Nánari upplýsingar fást hjá yfirvöldum á staðnum.
Aðgerðir sem byggjast á þráðlausu staðarneti eða mega keyra í bakgrunni á meðan

aðrar aðgerðir eru notaðar ganga á rafhlöðu tækisins og draga úr endingu hennar.
Tækið þitt styður eftirtalda möguleika í þráðlausu staðarneti:

IEEE 802.11b/g og WAPI staðla

Notkun á tíðninni 2,4 GHz

WEP-dulkóðunarstaðalinn (Wired equivalent privacy) með allt að 128 bita

lyklum, Wi-Fi staðalinn (WPA) og 802.1x sannvottunaraðferðir. Aðeins er hægt

að nota þessa valkosti ef símkerfið styður þá.

Tengingar 125

© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

background image

Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af tiltækum dulkóðunaraðferðum til að auka

öryggi þráðlausrar staðarnetstengingar. Notkun dulkóðunar dregur úr hættunni á

því að einhver fái aðgang að gögnunum þínum án heimildar.