Minniskorti komið fyrir
Aðeins skal nota samhæft microSD- og microSDHC-kort sem Nokia samþykkir til
notkunar með þessu tæki. Nokia styðst við viðurkennda staðla fyrir minniskort. Þó
getur verið að sum kort sé ekki hægt að nota að fullu með þessu tæki. Ósamhæf
kort geta skaðað kortið og tækið og skemmt gögn sem vistuð eru á kortinu.
Hugsanlega hefur minniskorti þegar verið komið fyrir í tækinu. Ef ekki skaltu gera
eftirfarandi:
1 Opnaðu minniskortsraufina.
Tækið tekið í notkun 21
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
2 Settu samhæft minniskort í minniskortaraufina. Gættu þess að snertiflötur
kortsins snúi niður. Ýttu kortinu inn. Smellur heyrist þegar kortið fellur á sinn
stað.
3 Lokaðu minniskortsraufinni. Gættu þess að vel sé lokað.