Nokia 5530 XpressMusic - Aðgerðir á snertiskjá

background image

Aðgerðir á snertiskjá

Banka og tvíbanka

Til að opna forrit eða aðra aðgerð á snertiskjánum smellirðu yfirleitt á skjáinn með

fingri eða skjápenna. En til að opna eftirfarandi atriði þarftu að tvíbanka á þau.

Atriði á lista í forriti, svo sem Drög í möppulistanum í Skilaboðum.

30 Tækið tekið í notkun

© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

background image

Ábending: Þegar listaskjár er opnaður er fyrsta atriðið auðkennt. Auðkenndi

hluturinn er opnaður með því að banka einu sinni á hann.

Forrit og möppur í valmyndinni þegar listaskjágerðin er notuð

Skrá á skráarlista, til dæmis mynd á mynda og hreyfimyndaskjá í Galleríinu.
Ef þú bankar einu sinni á skrá eða svipaðan hlut opnast hann ekki heldur verður

hann auðkenndur. Til að sjá tiltæka valkosti fyrir hlutinn skaltu velja

Valkostir

eða velja tákn af tækjastiku ef það er í boði.

Velja

Í þessum notendaleiðbeiningum er opnun forrita eða atriða með því að banka á

þau einu sinni eða tvisvar kallað að "velja". Ef velja þarf nokkra hluti í röð eru

valmyndaratriðin sem velja á aðskilin með örvum.

Dæmi: Tl að velja

Valkostir

>

Hjálp

skaltu smella á

Valkostir

og síðan á

Hjálp

.

Draga

Til að draga seturðu fingurinn eða skjápennann á skjáinn og rennir honum yfir

skjáinn.

Dæmi: Til að fletta upp eða niður á vefsíðu dregurðu síðuna með fingrinum eða

skjápennanum.

Tækið tekið í notkun 31

© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

background image

Strjúka

Til að sveifla rennirðu fingrinum hratt til vinstri eða hægri á skjánum.

Dæmi: Þegar mynd er skoðuð er hægt að skoða næstu eða fyrri mynd með því að

strjúka myndinni til vinstri eða hægri.
Skjár opnaður með stroku
Strjúktu til að aflæsa snertiskjánum

Strjúktu frá hægri til vinstri til að aflæsa snertiskjánum án þess að svara símtalinu.

Slökkt er sjálfvirkt á hringitóninum. Ýttu á hringitakkann til að svara símtali eða á

endatakkann til að hafna símtali.
Strjúktu til að svara símtali

Strjúktu frá vinstri til hægri til að svara símtali.
Strjúktu til að slökkva á hringingu

Strjúktu frá vinstri til hægri til að slökkva á hringingu. Strjúktu frá hægri til vinstri

til að stilla vekjara á blund.

32 Tækið tekið í notkun

© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

background image

Fletta

Til að fletta upp eða niður á lista sem er með flettistiku dregurðu til sleða

flettistikunnar.

Á sumum listaskjáum geturðu flett með því að setja fingurinn eða skjápennann á

atriði á listanum og draga það upp eða niður.

Dæmi: Til að fletta gegnum tengiliði seturðu fingurinn eða skjápennann á tengilið

og dregur upp eða niður.
Ábending: Til að sjá stutta lýsingu á táknum og hnöppum seturðu fingurinn eða

skjápennann á táknið eða hnappinn. Ekki eru til lýsingar á öllum táknum og

hnöppum.
Baklýsing snertiskjás

Ef skjárinn er ekki notaður í tiltekinn tíma slokknar á bakljósi hans.

Til að kveikja á bakljósinu smellirðu á skjáinn.

Ef snertiskjárinn og takkarnir eru læstir kviknar ekki á ljósinu þótt smellt sé á skjáinn.

Til að taka skjáinn og takkana úr lás skaltu renna lásnum til.

Tækið tekið í notkun 33

© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.