Snið án tengingar
Ótengt snið gerir þér kleift að nota tækið án þess að tengjast við farsímakerfið.
Þegar ótengda sniðið er valið er hægt að nota tækið án SIM-korts.
Virkja ótengt snið
Ýttu stutt á rofann og veldu
Án tengingar
.
Þegar þú virkjar ótengt snið lokast tengingin við farsímakerfið. Lokað er á allar
sendingar útvarpsmerkja til og frá tækinu til farsímakerfisins. Ef þú reynir að senda
skilaboð um farsímakerfið er þeim komið fyrir í úthólfinu þaðan sem þau eru send
síðar.
Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja, svara símtölum eða nota
aðra valkosti þar sem þörf er á tengingu við farsímakerfi. Áfram kann að vera hægt
að hringja í það neyðarnúmer sem er forritað í tækið. Eigi að hringja verður fyrst
að virkja símaaðgerðina með því að skipta um snið. Ef tækinu hefur verið læst skal
slá inn lykilnúmerið.
Þegar þú hefur valið ótengda sniðið geturðu áfram notað þráðlaust staðarnet, t.d.
til þess að lesa tölvupóst eða vafra á internetinu. Einnig er hægt að nota Bluetooth-
tengingu í ótengda sniðinu. Mundu að fara að öllum viðeigandi öryggisreglum
þegar þú kemur á þráðlausri staðarnetstengingu eða Bluetooth-tengingu.