Símtalsstillingar
Símtalsstillingar
Með símtalsstillingum geturðu valið tilgreindar stillingar í tækinu þínu.
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Hringistillingar
>
Símtöl
.
Veldu úr eftirfarandi:
Senda mitt númer — Veldu
Já
til að þeir sem þú hringir í sjái símanúmerið þitt.
Ef þú vilt nota stillingarnar sem þjónustuveitan þín hefur samþykkt skaltu velja
Stillt
af símkerfi
(sérþjónusta).
Símtal í bið — Láttu tækið gera þér viðvart ef hringt er í þig á meðan þú ert að
tala í símann (sérþjónusta) eða athugaðu hvort sú aðgerð er virk.
Hafna símtali með skilab. — Sendu textaskilaboð þegar þú hafnar símtali og
greindu þeim sem hringdi frá því hvers vegna þú gast ekki svarað.
164 Stillingar
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
Texti skilaboða — Skrifaðu stöðluð textaskilaboð sem eru send þegar þú hafnar
símtali.
Sjálfvirkt endurval — Láttu tækið gera allt að tíu tilraunir til að hringja aftur í
númer sem ekki náðist samband við. Ýttu á hætta-takkann til að slökkva á sjálfvirka
endurvalinu.
Sýna lengd símtala — Birta lengd símtals meðan á því stendur.
Samantekt símtals — Birta lengd símtals eftir að því lýkur.
Hraðval — Kveikt á hraðvali.
Takkasvar — Kveikt á takkasvari.
Lína í notkun — Þessi stilling (sérþjónusta) sést aðeins ef SIM-kortið styður tvær
símalínur, þ.e. tvö númer í áskrift. Veldu hvaða símalínu á að nota til að hringja og
senda textaskilaboð. Það er hægt að svara símtölum á báðum línum, burtséð frá
því hvor línan hefur verið valin. Ef þú velur
Lína 2
en hefur ekki gerst áskrifandi að
þessari sérþjónustu geturðu ekki hringt úr tækinu. Þegar lína 2 er valin birtist
táknið þegar tækið er í biðstöðu.
Línuskipting — Til að hindra að skipt sé á milli lína (sérþjónusta), ef SIM-kortið
styður það. Til að breyta þessari stillingu þarftu að hafa PIN2-númerið.
Mismunandi getur verið hvaða valkostir eru í boði.