Nokia 5530 XpressMusic - Athugaðu stöðu merkja frá gervitungli

background image

Athugaðu stöðu merkja frá gervitungli

Í tækinu er innbyggt GPS-loftnet. Til að hægt sé að nota forrit sem krefjast GPS-

tengingar þar samhæfan GPS-móttakara (aukabúnaður seldur sér).

Til að kanna hversu marga gervihnetti GPS-móttakarinn hefur fundið, og hvort hann

er að taka við upplýsingum frá gervihnöttunum, velurðu

Valmynd

>

Forrit

>

Staðsetning

og

GPS-gögn

>

Staðsetning

>

Valkostir

>

Staða gervitungla

.

Staðsetning 111

© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

background image

Ef GPS-móttakarinn hefur fundið gervitungl birtist stika fyrir hvert þeirra á

upplýsingaskjánum fyrir gervitungl. Því lengri sem stikan er, því meiri er styrkurinn.

Stikan verður blá þegar GPS-móttarakinn hefur fengið nægar upplýsingar frá

gervihnattamerkinu til að geta reiknað út staðsetningu þína.
Til að sjá stöðu gervihnattanna velurðu

Breyt. útliti

.

GPS-móttakarinn verður í upphafi að fá merki frá a.m.k. fjórum gervitunglum til að

geta reiknað út staðsetningu þína. Þegar frumútreikningur hefur farið fram kann

það að vera mögulegt að reikna út staðsetningu þína með þremur gervitunglum.

Hins vegar er útreikningurinn nákvæmari þegar fleiri gervitungl finnast.
Ef ekkert gervitunglamerki finnst skaltu hafa eftirfarandi í huga:

Sértu innanhúss skaltu fara út til að ná betra merki.

Sértu úti skaltu fara á opnara svæði.

Slæm veðurskilyrði geta einnig haft áhrif á sendistyrk.

Sum farartæki eru með skyggðum rúðum og ekki er víst að gervihnattamerki

berist í gegnum þær.