Myndatöku- og upptökustillingar
Ef þú vilt að skjámyndin fyrir myndatöku- og upptökustillingar opnist áður en mynd
eða hreyfimynd er tekin skaltu velja
Valmynd
>
Forrit
>
Myndavél
og .
Skjámyndin fyrir myndatöku og upptökustillingar er með flýtivísum til að velja ýmsa
hluti og stillingar áður en mynd eða hreyfimynd er tekin.
Þegar myndavélinni er lokað eru sjálfgefnar stillingar hennar valdar aftur.
Veldu úr eftirfarandi:
Velja umhverfisstillingu.
eða
Skiptu milli hreyfimynda- og kyrrmyndastillingar.
eða Sýna eða fela myndgluggatöflu (aðeins fyrir myndatöku).
Virkja sjálfvirka myndatöku (aðeins myndir).
Myndavél 95
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
Kveikja á myndaröð (aðeins myndir).
Opna Gallerí.
Myndastillingar:
Velja litaáhrif.
Til að stilla ljósgjafa. Veldu birtuskilyrðin. Þetta gerir myndavélinni kleift að
endurskapa liti af meiri nákvæmni.
Til að stilla leiðréttingu við myndatöku (aðeins kyrrmyndir). Ef þú ert að taka
mynd af dökkum hlut með mjög ljósum bakgrunni, t.d. snjó, skaltu stilla lýsinguna
á +1 eða +2 vegna birtunnar í bakgrunninum. Stilltu á -1 eða -2 ef um er að ræða
ljósan hlut með dökkum bakgrunni.
Til að stilla ljósnæmi (aðeins fyrir kyrrmyndir). Auka skal ljósnæmi þegar birta er
lítil til að myndirnar verði ekki of dökkar og óskýrar. Þegar ljósnæmi er aukið kann
myndsuð einnig að aukast.
Stilla birtuskil (aðeins fyrir kyrrmyndir). Til að stilla muninn á ljósustu og dekkstu
hlutum myndarinnar.
Stilla skerpu (aðeins fyrir kyrrmyndir).
Skjárinn breytist eftir því hvaða stillingar eru valdar.
Myndatökustillingarnar gilda fyrir hverja einstaka myndatöku. Ef skipt er úr einni
stöðu í aðra færast stillingarnar ekki í tilgreint horf.
Ef ný umhverfisstilling er valin kemur hún í stað myndatökustillinganna. Hægt er
að breyta myndatökustillingunum eftir að umhverfi hefur verið valið, ef þörf krefur.
96 Myndavél
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
Það getur tekið lengri tíma að vista myndir ef stillingum fyrir stækkun, lýsingu eða
liti er breytt.