
Lykilorð
PIN- eða PIN2-
númer
(4-8 tölur)
Slíkt númer kemur í veg fyrir að SIM-kortið sé notað í
leyfisleysi eða er nauðsynlegt til að fá aðgang að tilteknum
aðgerðum.
Þú getur stillt tækið þannig að það biðji um PIN-númerið
þegar kveikt er á því.
Ef númerin fylgja ekki með SIM-kortinu eða þú gleymir þeim
skaltu hafa samband við þjónustuveituna.
Ef þú slærð inn rangt PIN- eða PIN2-númer þrisvar sinnum í
röð þarftu að opna það með PUK- eða PUK2-númerinu.
PUK- eða PUK2-
númer
(8 tölur)
Slíkt númer er nauðsynlegt til að opna PIN- eða PIN2 númer.
Hafa skal samband við þjónustuveituna ef þessi númer fylgja
ekki með SIM-kortinu.
IMEI-númer
(15 tölur)
Númerið er notað til að auðkenna gild tæki í símkerfinu.
Einnig er hægt að nota númerið til að loka til dæmis stolnum
tækjum.
Hægt er að sjá IMEI-númerið með því að hringja í *#06#.
Lásnúmer
(öryggisnúmer)
(minnst 4 tölur eða
stafir)
Númerið kemur í veg fyrir að tækið sé notað í leyfisleysi.
Þú getur stillt tækið þannig að það biðji um lásnúmerið sem
þú velur.
Haltu númerinu leyndu og á öruggum stað, fjarri tækinu.
Hjálp 15
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Ef þú gleymir númerinu og tækið er læst þarftu að leita til
þjónustuaðila. Þú getur þurft að greiða viðbótargjald og
persónulegum gögnum í tækinu kann að verða eytt.
Nánari upplýsingar færðu hjá Nokia Care þjónustuaðila eða
söluaðilanum.