
Aukin ending rafhlöðu
Ýmsar aðgerðir tækisins ganga á rafhlöðu símans og draga úr endingu hennar. Til
að spara rafhlöðuna skaltu hafa eftirfarandi í huga:
•
Eiginleikar sem nota Bluetooth-tengingu eða það að leyfa slíkum eiginleikum
að keyra í bakgrunni meðan aðrir eiginleikar eru í notkun eyða meira af
rafhlöðunni. Slökktu á Bluetooth þegar þú þarft ekki að nota það.
•
Eiginleikar sem nota þráðlaus staðarnet (WLAN) eða leyfa slíkum eiginleikum
að keyra í bakgrunni meðan aðrir eiginleikar eru í notkun eyða meira af
rafhlöðunni. Slökkt er á þráðlausum staðarnetum í Nokia símanum þegar ekki
er verið að tengjast, ekki er tengt við aðgangsstað eða þegar ekki er leitað að
netkerfum. Til að spara rafhlöðuna enn frekar er hægt að stilla tækið þannig að
það leiti ekki eða leiti sjaldnar að tiltækum netkerfum í bakgrunninum.
•
Ef þú hefur valið
Pakkagagnatenging
>
Ef samband næst
í
tengingarstillingunum og ef það er engin pakkagagnatenging (GPRS) reynir
síminn reglulega að koma á pakkagagnatengingu. Til að lengja starfhæfan tíma
tækisins velurðu
Pakkagagnatenging
>
Ef með þarf
.
•
Kortaforritið hleður niður nýjum kortaupplýsingum þegar þú ferð á ný svæði á
kortinu en það eykur á orkuþörfina. Hægt er að koma í veg fyrir sjálfvirkt
niðurhal á nýjum kortum.
•
Ef sendistyrkur farsímakerfisins er breytilegur á þínu svæði verður tækið
reglulega að leita að tiltækum símkerfum. Þetta eykur orkuþörfina.
16 Hjálp
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

•
Baklýsing skjásins eykur orkuþörfina. Í skjástillingunum getur þú stillt birtustig
og breytt tímanum sem þú vilt að líði þar til slökkt er á baklýsingunni. Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Sími
>
Skjár
>
Birtustig
eða
Tímamörk ljósa
.
•
Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar rafhlöðuorku. Til að loka forriti sem
þú notar ekki ýtirðu á valmyndartakkann, velur forrit og velur
Hætta
. Þessi
möguleiki er ekki fyrir hendi í öllum forritum.