Þráðlaus hugbúnaðaruppfærsla
Veldu
Valmynd
>
Forrit
>
Hugb.uppf.
.
Með Uppfærslu forrita (sérþjónusta) geturðu kannað hvort einhverjar uppfærslur
fyrir hugbúnað tækisins eru tiltækar og hlaðið þeim niður í tækið.
Það að hlaða hugbúnaðaruppfærslum getur falið í sér stórar gagnasendingar
(sérþjónusta).
Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið áður
en uppfærslan er ræst.
Hjálp 13
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
Viðvörun:
Ekki er hægt að nota tækið, jafnvel ekki til að hringja neyðarsímtöl, fyrr en
uppfærslunni er lokið og tækið hefur verið endurræst.
Þegar þú hefur uppfært hugbúnað eða forrit tækisins með Uppfærslu forrita er ekki
víst að leiðbeiningarnar um uppfærðu forritin í notendahandbókinni eða í
hjálpartextanum eigi lengur við.
Til að hlaða niður tiltækum uppfærslum velurðu . Veldu uppfærslur af listanum
til að afmerkja tilteknar uppfærslur sem þú vilt ekki hlaða niður.
Til að sjá upplýsingar um uppfærslu velurðu .
Til að skoða stöðu eldri uppfærslna velurðu .
Veldu
Valkostir
og svo úr eftirfarandi:
Uppfæra í gegnum tölvu — Uppfæra tækið með tölvu. Þessi valmöguleiki kemur
í stað valkostsins Ræsa uppfærslu þegar uppfærslur eru eingöngu fáanlegar með
Nokia Software Updater tölvuforritinu.
Skoða fyrri uppfærslur — Skoða stöðu eldri uppfærslna.