
Sérþjónusta
Til að hægt sé að nota tækið verða notendur að vera áskrifendur þjónustu fyrir
þráðlausa síma. Ekki er hægt að nota alla þessa valkosti í öllum símkerfum. Fyrir
suma eiginleika kann jafnframt að vera farið fram á sérstaka skráningu hjá
þjónustuveitunni. Sérþjónusta felur í sér sendingu gagna. Fáðu upplýsingar hjá
þjónustuveitu þinni um gjöld á heimaneti þínu og þegar reiki er notað á öðrum
netum. Þú getur fengið upplýsingar um gjöld hjá þjónustuveitunni. Sum netkerfi
geta verið með takmörkunum sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota tiltekna
10 Öryggi
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

eiginleika tækisins og krefjast netþjónustu á borð við stuðning við tiltekna tækni
eins og WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL) sem fara eftir TCP/IP
samskiptareglum og ýmsum sérstöfum í tungumálum.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar
eða ekki gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins. Í tækinu
gætu atriði einnig verið sérsniðin, s.s. heiti á valmyndum, skipanir og tákn.